Innskráning í Karellen
news

Agalota

24. 08. 2018

Lota 1: Agi

  • Agalotan er fyrsta stig félagsþjálfunar og fer fram í ágúst-september.
  • Lykilhugtök lotunnar eru: virðing, hegðun, kurteisi, framkoma.
  • Uppskeruvikan er framkomuvika.

R-reglurnar eru í hávegum hafðar í Hjallastefnustarfi; röð, regla og rútína í fyrirrúmi á öllum sviðum. Kjarnað umhverfi alls staðar, allir hlutir merktir, umferðarreglur merktar og sýnilegt og áþreifanlegt hvernig allt á að vera. Þaulhugsuð dagskrá og einfaldleiki í öllu skipulagi er jafnmikilvægt og umhverfiskjörnunin. Í kjarnastarfinu er síðan áherslan á skarpa nemendastjórnun með nákvæmri eftirfylgd og hegðunarreglum sem börnin taka þátt í að móta, kynna og endurskoða. Þjálfun í kurteisi og mannasiðum, æfing í að heilsast og kveðjast, borðsiðir og umgengni um fataklefa eru raunveruleikatengd verkefni í þessari lotu. Framkomuhæfni í kynjablöndun er æfð sérstaklega.

Munum að við erum alltaf að æfa okkur, líka fullorðna fólkið, því árangur barnanna ræðst af þeim aga sem við náum að sýna, til dæmis varðandi frágang, kyrrlátar raðir milli staða, stundvísi of.l.

Í Agalotunni sláum við tóninn fyrir starfið okkar í vetur og skerpum á því öryggi sem fellst í vel kjörnuðu og skipulögðu umhverfi. Börnin læra að hjálpa sér sjálf í rýminu og æfa sig í tillitssemi og samskiptum við alla í skólanum með agaæfingum og kurteisi.

© 2016 - Karellen