Innskráning í Karellen
news

Lokahóf þróunarverkefnis

21. 09. 2017

Leikskólinn Barnaból hefur unnið að þróunarverkefni síðustu tvö ár í samstarfi við leikskóla í Húnavatnssýslunum og Strandabyggð sem kallast Málörvun og læsi - færni til framtíðar. Ásthildur Bj.Snorradóttir talmeinafræðingur var fengin sem verkefnastjóri og hefur unnið með okkur að verkefninu frá byrjun.

Skólarnir hafa lokið þróunarverkefninu með gerð handbókar þar sem fram kemur hvernig málörvun fer fram og einnig hvernig foreldrasamstarfi er háttað. Foreldrar allra barna í Barnabóli munu í næstu viku fá afhenta foreldrahandbók þar sem upplýsingar um málörvun og foreldrasamstarf er að finna.

Starfsfólk skólanna ætlar að fagna lokum verkefnisins með uppskeruhátíð á Hótel Laugarbakka föstudaginn 22.september að skóladegi loknum. Þá mun Ingibjörg Huld Þórðardóttir talmeinafræðingur koma með fyrirlestur um málörvun barna og þar á eftir verða málstofur þar sem kennarar skólanna munu vera með innlegg hvernig unnið er með málörvun. Við í Barnabóli munum kynna hvernig við vinnum með Lubba og málbeinin.

Uppskeruhátíðinni lýkur með kvöldverði og skemmtun starfsfólks á Hótel Laugarbakka. Heiðursgestur er Ásthildur Bj. Snorradóttir.

Má nefna að María Ösp og Þórdís fræðslustjóri kynntu verkefnið á afmælisráðstefnu Ásthildar í Gerðubergi 14.september síðastliðinn.

© 2016 - Karellen