Innskráning í Karellen
news

Agalota og virðing

28. 08. 2025

Hauststarfið fer einstaklega vel af stað hjá okkur hérna á Skagaströnd, veðrið leikur við hvurn sinn fingur og með gleði í hjarta leggjum við af stað í agalotuna okkar. Í þessari viku höfum við horft til virðingarinnar og hvað felst í því að sýna öðrum virðingu og hvernig við gerum það.

Á morgun föstudag er leikskólinn lokaður vegna haustþings leikskólanna á Norðurlandi vestra, að þessu sinni er þingið á Blönduósi og verður boðið upp á fjölbreytta fyrirlestra.

© 2016 - Karellen