Það er alltaf nóg að gera hjá okkur á Barnabóli, fyrstu lotu vetrarins er lokið, en það er agalotan og í næstu viku hefjumst við handa við sjálfstæðislotuna. Í sjálfstæðislotunni byggjum við upp sjálfmyndina okkar og lotulyklarnir eru: sjálfstyrking, sjálfstraust, öryggi og tjáning.
Við tókum upp kartöflurnar okkar á dögunum og fengum ágætis uppskeru, við sömdum svo við matráðinn að elda kartöflurnar fyrir okkur og þær runnu ljúflega niður, sögur herma að þetta hafi verið bestu kartöflur í heimi.
Við förum í leikfimi í íþróttahúsinu á fimmtudagsmorgnum í vetur, við erum búin að fara tvisvar í þessum mánuði og gengur það mjög vel.
Í gönguferðum okkar um bæinn finnst okkur ógurlega gaman að veifa fólki og kætumst við þegar við fáum vink, veif eða flaut til baka, við þökkum fyrir tillitsemina sem við fáum frá akandi vegfarendum þegar við erum í þessum ferðum.
Næstkomandi föstudag 3. október er leikskólinn lokaður vegna starfsdags hjá okkur, við ætlum að leggja land undir fót og hitta samstarfsfólk okkar hjá Hjallastefnunni á ráðstefnu og yfirskrift ráðstefnunnar er í ár: Göngum skrefinu lengra.