Í dag fögnuðum við þorranum með veglegu þorrablóti, það er heilmikil áskorun að bragða á þessum þjóðlega og góða mat, öllum býðst að smakka, lykta og horfa og þeir sem vilja taka smökkunarbita. Maturinn rann ljúflega niður og allir tóku vel til matar síns.
Við erum í jákvæðnilotu og í henni leggjum við áherslu á góða menningu innan sem utan leikskólans, við æfum okkur í að vera ákveðin, hreinskiptin, bjartsýn og glöð og uppskerum svo í sannkallaðri gleðiviku. Næstkomandi föstudag er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur og af því tilefni erum við að undirbúa listasýningu sem verður haldin í anddyri stjórnsýsluhússins.