Meginreglur
Meginreglurnar eru grundvöllurinn að öllu starfi Hjallastefnuskóla. Þær eru í reynd bæði stefnuyfirlýsing og hugmyndafræði skólanna og fela í sér þá lífssýn og mannskilning sem allt starfsfólk sameinast um. Meginreglurnar eru sex, þær eru í skýrri forgangsröð og byggir hver regla á þeirri sem á undan kemur.