Samskiptalotan er annað stig félagsþjálfunar og fer fram hjá okkur vikurnar 3.-28. nóvember. Lotulyklarnir eru umburðarlyndi, hjálpsemi, víðsýni og samstaða og síðastu vikuna köllum við samstöðuviku.
Í þessari lotu eru samvinnuverkefni af ýmsu tagi efst á baugi. Tveir og fleiri eru saman í verkefnum, samvinna er í kynjablönduninni og samvinna milli eldri og yngri kjarna. Þessi lota er í raun eineltisáætlun Hjallastefnunnar því hér er fjallað um samskiptin í sinni víðustu mynd, nemendum kennt að virða landamæri annarra og standa saman um jákvæða framkomu og jákvæða hegðun, enda má segja að þessi lota snúist um félagslega jákvæðni.