Innskráning í Karellen
news

Dagur leikskólans og listasýning

07. 02. 2025

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar ár hvert, en sá dagur er merkisdagur í sögu leikskóla á Íslandi, en árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og beina athygli samfélagsins alls að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins.

Það er orðin hefð hjá okkur á Barnabóli að halda upp á daginn með opnun listasýningar, fyrstu árin héldum við sýningarnar okkar í Landsbankanum í Höfða, en í ár var sýningin sett upp í anddyri stjórnsýsluhússins. Rauð veðurviðvörun og tilmæli frá Almannavörnum um lokun leikskólans seinkuðu opnun listasýningar okkar um einn dag og var sýningin sett upp í dag.

Við hvetjum ykkur öll að kíkja á þessa glæsilegu sýningu.

© 2016 - Karellen