Innskráning í Karellen
news

Fjölgun í leikskólanum

30. 05. 2025

Síðustu vikur höfum við verið með útungarvél hjá okkur í leikskólanum og um síðustu helgi litu 11 litlir og sætir hænuungar dagsins ljós. Þetta ferli hefur verið mjög lærdómsríkt og gefandi og skapað skemmtilega umræðu um lífið og tilveruna, auk þess að gefa okkur öllum gleði í hjartað.

Vorstörfin hjá okkur eru í fullum gangi hjá okkur og í vikunni settum við niður kartöflur, við vorum svo lánsöm að fá gefins kartöfluútsæði hjá heiðurskonu hér í bæ og þökkum við Buggu kærlega fyrir, við væntum svo góðrar uppskeru í haust.

Við óskum öllum góðrar og gleðilegrar hátíðarhelgar og óskum sjómönnum- og konum innilega til hamingju með daginn.

© 2016 - Karellen