Veðrið hefur aldeilis leikið við okkur síðastliðna daga, við höfum nýtt tækifærið og notið útiverunnar. Síðasta fimmtudag var útskrift úr hópastarfi og nutum við veðurblíðunnar í sápukúluleik og sulli. Eitt foreldri kom færandi hendi með ís og sápukúlur og þökkum við kærlega fyrir það.
Rauði og blái hópur brugðu undir sig betri fætinum í gær og fóru í fyrri hópatíma dagsins upp á tjaldsvæði að leika sér, hópurinn nestaði sig vel fyrir ferðina og fékk afnot af grillinu hennar Birtu sem býr rétt hjá tjaldsvæðinu og slógu upp grillveislu í garðinum. Hópurinn kom svo ekki aftur í leikskólann fyrr en seinni hópatíma dagsins lauk, virkilega vel heppnaður dagur.
Alla þriðjudaga eru hjóladagar hjá okkur, yngri hóparnir hjóla inni á leikskólalóðinni en eldri hóparnir fara út á bílaplan og hjóla, en við afmörkum svæðið af með keilum og það gengur mjög vel.