Í næstu viku hefst vetrarstarfið okkar af fullum krafti. Við skiptum vetrinum upp í sex lotur og kennum þrjár þeirra fyrir áramót og þrjár eftir áramót.
Fyrsta lotan okkar er agalota og byggir hún upp sjálfsstjórn, hverri lotu og hverri iðkun fylgja síðan yfirgripsmikil markmið eða hvernig framtíðarfærni byggist upp hjá hverju barni. Lotunni er síðan skipt upp í fjórar vikur og hugtök hverrar viku eru; virðing, hegðun, kurteisi og framkoma.