Nú stendur jákvæðnilotan okkar sem hæðst, hún er upphaf nýrrar annar og þar sláum við jákvæðan takt inn í skólastarfið. Að sjálfsögðu er jákvæðni alltaf í fyrirrúmi alla daga skólaársins en í Jákvæðnilotu þá leggjum við enn meiri áherslu í því að æfa okkur í ákveðni, hreinskiptni, bjartsýni og gleði og mikil áhersla er lögð á jákvæðniæfingar eins og gleðisöngva, dans, æfa jákvæð orð um sjálf sig og hvert annað. Samhliða jákvæðniþjálfun vinnum við verkefni sem þjálfa börn í að setja mörk fyrir sjálf sig, tala um tilfinningar og velta fyrir sér viðhorfum sínum, segja já en ekki segja já við hverju sem er. Æfa að tala af hreinskiptni og heiðarleika, læra að setja mörk og öðlast þannig dýpri sjálfsskilning. Við aðstoðum stúlkur við að losna frá því að nota þögn og fýlu sem stjórnunartæki og þjálfum þær í að orða óskir sínar skýrt, þekkja vilja sinn og færa í orð. Á sama tíma þá þjálfum við drengi í að orða tilfinningar sínar, deila líðan sinni og opna sig ánþess að vera dæmdir fyrir það. Það er alveg eins mikilvægt fyrir okkur fullorðna fólkið að huga að þessum hlutum, því jákvæð hegðun þarfnast æfingar. Þannig þjálfum við viðhorf okkar og jákvæð viðhorf til lífsins er grunnur að góðri andlegri líðan, að ég tali ekki um á þessum dimmustu mánuðum ársins.
Við stefnum því að gleðilegri jákvæðnilotu sem verður full af dansi, söng og almennri gleði sem við stefnum á að deila út í samfélagið okkar. Eigið gleðilegan janúar