Innskráning í Karellen
news

Röð, regla og rútína að hausti

07. 08. 2025

Leikskólinn hófst að afloknu góðu fjögurra vikna sumarfrí sl. þriðjudag 5. ágúst.

Við vonum svo sannarlega að allir hafi notið sumarfrísins í hvívetna, átt notalegar stundir, skapað skemmtilegar minningar og notið lífsins.

Þó svo að sumarfríið hafi verið gott og skemmtilegt þá er svo sannarlega gott að komast aftur í röð, reglu og rútínu, Við erum að máta okkur inn í nýja hópa, en alls eru 28 nemendur í skólanum þetta haustið, sá yngsti er 12 mánaða.

Hænurnar okkar eru komnar aftur í leikskólann en þær þurfti að fá skjól í sveitasælunni í sumarfríinu, en við fögnum því að þær eru komnar aftur til okkar.

Við siglum inn í haustið og veturinn full af eftirvæntingu og gleði.

© 2016 - Karellen