Innskráning í Karellen
news

Útskriftarferð elstu barna leikskólans

07. 05. 2025

Á mánudaginn fóru elstu börnin okkar í 2 nátta útskriftarferð, 6 börn eru í útskriftarárganginum okkar núna og fóru þau ásamt tveimur kennurum í ferðina.

Gist er í skíðaskálanum og farið í vettvangsferðir um nágrennið, Þórdís spákona hafði frétt af komu þeirra í skíðaskálann og hafði hún komið fyrir vísbendngum um hvar fjársjóð væri að finna, fjársjóðurinn fannst og vakti mikla gleði, einnig var farið í sveitaferð og kíkt á búskapinn.

Það er mikil áskorun að fara í svona langa útskriftarferð, það þarf mikið hugrekki, áræðni, dug og traust til þess að allt gangi vel. Börnin komu alveg einstaklega glöð og ánægð heim úr ferðinni, reynslunni og hugrekkinu ríkari.

© 2016 - Karellen