Það er árleg hefð hjá okkur á Barnabóli að halda karnival í júníbyrjun, þá klæðum við okkur uppá, málum okkur og förum syngjandi og trallandi glöð um bæinn, síðan endum við á grillveislu í leikskólanum. Veðrið var nú ekki að leika við okkur þetta árið, en við létum það ekki á okkur fá, enda er allt veður gott veður þegar við erum með gleði í hjartanu.
Við höfum sagt frá því að það er búið að unga út litlum hænuungum hjá okkur og hefur það ferli glatt okkur einstaklega mikið. Í ljós kom að við erum bara engan veginn tilbúinn að sleppa hendinni af ungunum og fengum okkur hænsnakofa sem er búið að koma fyrir úti á lóð, það er verið að græja í hann rafmagn og svo þarf að girða utanum hann.
Það fór fram kosning hér innanhúss hvaða hænur yrðu eftir hjá okkur og stóð til að velja 3 unga, en þegar búið var að telja þá kom í ljós að tveir ungar höfðu jöfn atkvæði um 3. sætið, við brugðum því á að það ráð að hafa eina uppbótarhænu og því verða hænurnar 4 sem verða eftir hérna hjá okkur, en þær heita: Depla, Finna, Hjarta og Snjóhvít, við bjóðum þær hjartanlega velkomnar hérna í leikskólann okkar.